Prjónakennsla

Í handavinnu/textíl er ég að kenna nemendum að prjóna. 

Þegar margir nemendur eru í hóp og allir að byrja að prjóna á sama tíma er erfitt að liðsinna öllum í einu. Eftir að skólinn varð mjög vel spjaldtölvuvæddur geta nemendur notað spjaltölvur í nánast öllum tímum. 

Ég er búin að vera að prófa mig áfram með að nota myndbönd á youtube um það hvernig á að fitja upp á prjón og síðan prjóna slétt og brugðið.  Þetta hefur gefist nokkuð vel einkum ef nemendur stilla á að sýna myndbandið mjög hægt. 

Þau sem eru áhugasömust og hafa mestu einbeitinguna hafa náð að læra að prjóna á þennan hátt en hin þurfa einnig aðstoð og útskýringar kennarans. 




Ummæli

Vinsæll póstur

Ferð starfsfólks Bláskógaskóla Reykholti til Ítalíu, 30.04.2019 – 05.05. 2019

Utís 2019 - Upping your classroom - Jesse Lubinsky