Færslur

Selið Bláskógaskóla Reykholti og í leikskólanum Álfaborg Reykholti

Mynd
  Selið er dægradvöl fyrir nemendur leikskólans Álfaborgar og grunnskólans Bláskógaskóla Reykholti í Bláskógabyggð. Í vetur hafa báðir skólarnir starfað undir sama þaki í húsnæði Bláskógaskóla þar sem húsnæði Álfaborgar var lokað vegna myglu fyrir nokkru síðar. Selið hefur ekki sérstakt húsnæði undir starfsemina heldur er húsnæði skólanna nýtt. Þátttaka í dægradvölinni/frístundinni er gjaldfrjáls fyrir nemendur. Markmið Markmið Selsins er fjórþætt. 1. Að brúa bilið frá því að kennslu í grunnskólanum lýkur á daginn og nemendur bíða eftir skólaakstri heim tvo daga í viku. 2. Að tengja saman yngstu nemendur grunnskólans þ.e. 1.-4.bekk og tvo elstu árganga leikskólans. 3. Einnig er markmið Selsins að styðja grunnskólanemendurna við ,,heimanám“ og ólokin verkefni auk þess að sinna heimalestri. 4. Að tengja íþróttastarf ungmennafélags Biskupstungna við starfssemi grunnskólans og bjóða nemendum í 1. – 4. bekk upp á æfingar á skólatíma. Tími Samkv...

Textílmennt Bláskógaskóla Reykholti 2018-2019

Í vetur var textílmennt kennd í Bláskógaskóla Reykholti þannig að allir nemendur skólans frá 2.bekk - 7.bekk fengu tvo tíma á viku allan veturinn. Helgast þetta meðal annars af því að pláss í skólanum er takmarkað en textílstofan í fullri virkni. T.d. var ekki hægt að kenna neina heimilisfræði vegna plássleysis. Nemendur vinna fyrst ákv. ,,skylduverkefni" og þegar þeim er lokið meiga þau velja sér viðfangsefni. Hér fyrir neðan má sjá myndband með nokkrum af þeim verkefnium sem voru unnin í vetur. Einnig má sjá myndbandið á youtube.com 

Verksmiðjan - nýsköpunarkeppni 2019

Mynd
Verksmiðjan – nýsköpunarkeppni 2019                  Í byrjun desember 2018 er kynnt til sögunar nýtt verkefni Verksmiðjan sem átti að vera nýsköpunarkeppni fyrir unglinga á grunnskólastigi. Þetta hljómaði vel og aðstoðarskólastjórinn Lára Bergljót hvatti mig eindregið til þess að taka þátt í þessu verkefni fyrir hönd skólans og stýra því. Ég viðurkenni að mér fannst þetta mjög spennandi og öngrandi verkefni þar sem það er ekki hefð fyrir slíkri vinnu í skólanum og nemendur ekki beint þjálfaðir í að vinna slíka vinnu sem nýsköpunarhugsunin er. Niðurstaðan var sú að fara á kynningarfund í fab-labinu á Selfossi þar sem farið var yfir hugmyndirnar og kynnt hverjir stæðu að verkefninu.   Að verkefninu standa Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarkeppni grunnskólanna , Fab Lab á Íslandi , menntamálaráðuneytið , Nýsköpunarmiðstöð Íslands , Listasafns Reykjavíkur og RÚV . Fyrir hönd sk...